Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Völuvísa

Eitt verð ég að segja þér áður en ég dey,
enda skalt þú börnum þínum kenna fræði mín,
sögðu mér það álfarnir í Suðurey,
sögðu mér það dvergarnir í Norðurey,
sögðu mér það gullinmura gleymmérey
og gleymdu því ei:
að hefnist þeim er svíkur sína huldumey,
honum verður erfiður dauðinn.

Auður Haraldsdóttir / Guðmundur Böðvarsson