Ljósleiðaraslit í Bolungarvík
Verktaki sem er að grafa upp Völusteinsstræti í Bolungarvík fór í ljósleiðara með þeim afleiðingum að skemmdir komu í hann. Sökum þess eru einhverjir notendur úti.
Uppfært 14.08.26 kl 09:49: Menn eru á staðnum að greina skemmdir.
Uppfært 14.08.26 kl 13:29: Eins og er hefur skemmdin áhrif á fáeina notendur en nauðsynlegt verður að skipta um allan strenginn sem er 96 leiðari. Sökum aðstæðna verður ekki hægt að gera viðgerð fyrr en á mánudaginn.
Uppfært 17.08.26 kl 9:00: Viðgerð á streng mun hefjast von bráðar og má búast við að hún standi fram yfir hádegi. Notendur í efri bæ Bolungarvíkur mega því búast við netleysi á meðan viðgerð stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að verða vegna þess.
Uppfært 17.08.26 kl 9:56: Viðgerð er hafin og búið að rjúfa streng.
Uppfært 17.08.26 kl 15:10: Viðgerð er lokið og ættu allir notendur að vera komnir inn.