Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Við gengum tvö

Við gengum tvö, við gengum tvö
í rökkuró,
við leiddumst hljóð, við leiddumst hljóð
um húmgan skóg.
þú varst yndi, þú varst yndi
og ástin mín,
og stundin áfeng, stundin áfeng
eins og vín.

Við hlýddum tvö, við hlýddum tvö
í húmi ein,
er blærinn kvað, er blærinn kvað
við blöð og grein.
Ég var nóttin, ég var nóttin
þögla þín,
og þú varst eina, þú varst eina
stjarnan mín.

Á meðan norðurljósin leiftra
um bláan himininn,
þá sit ég ein og þrái
kveðjukossinn þinn.

Friðrik Jónsson / V.H. Hallstað