Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Undir Dalanna sól

Undir Dalanna sól, við minn einfalda óð
hef ég unað við kyrrláta för.
Undir Dalanna sól, hef ég lifað mín ljóð
ég hef leitað og fundið mín svör.
:,: Undir Dalanna sól, hef ég gæfuna gist
stundum grátið en oftar í fögnuði kysst.
Undir Dalanna sól, á ég bú mitt og ból
og minn bikar, minn arinn, minn svefnstað og skjól. :,:

Björgvin Þ. Valdimarsson / Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum