Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Transilvanía

Ævinlega,
síðan þið rákust,
á tryggan ráðsmann minn.

Hann er svo styggur þessi gikkur,
því að í staðin fyrir ykkur,
vildi hann hitta stuðmanninn.

Hlaupið ekki í hnút,
þó ég líti svona út,
bókin er oft betri en spjöldin.

Mín karlmennska dvín,
meðan dagsljósið skín,
en ég er þrælgóður elskhugi á kvöldin.

Því ég er töff og taumlaus transi
frá kynfráu, Transilvaníu. Haha.

Leyf mér að bjóða ykkur inn,
og kannski tónlist um sinn,
þið virðist bæði geðþekk og glaðlynd.

Nú ef þið viljið það sjónrænt,
en ekki alltof siðrænt,
gætuð þið litið á gamla Steve Reeves mynd.

Það var gott að hitta á þig hér,
gætum við fengið að hringja hjá þér?
Í skyndi, ef þér væri sama.

Það verður örstutt,
svo förum við burt.
Við viljum síst verða til ama.

Svo dekkið þitt sprakk,
og þú átt engan tjakk,
en greyin mín ekki þennan flýti.

Því gott miðnætur blót,
er meinanna bót,
og ég sendi ykkur vélsmið úr víti.

Því ég er töff og taumlaus transi
frá kynfráu, Transilvaníu.

Þið gætuð gist hér í nótt,
og gert eitthvað ljótt,
og séð þráhyggjuverk mitt ... í þróun.

Ég hef verið að búa til karlmann,
bæði stóran og sterkan,
sem kynni að veita mér ... fróun.

Því ég er töff og þröngur transi
frá kynfráu, Transilvaníu. Hahahaha.

Því ég er töff og taumlaus transi (taumlaus transi)
frá kynfráu, Transilvaníu.

Sjáum hvað tilraunastofan,
geymir hér fyrir ofan,
þennan tilhlökkunar titring ég ... þekki.

Nema rigning og rok,
sé of þungbært ok,
þá afnem ég okið.
(haha) En einkennin ekki.

Upplýsingar um höfund vantar.