Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Þórður sjómaður

Hann elskaði þilför, hann Þórður,
og því komst hann ungur á flot.
Og hann kunni betur við Halann
en hleinarnar neðan við Kot.
Hann kærði sig ekkert um konur,
en kunni að glingra við stút,
og tæki hann upp pyttu,
er töf varð á löndun
hann tók hana hvíldarlaust út.
    Og þá var hann vanur að segja si svona:
    ,,Ja, sjómennskan er ekkert grín.
    :,: Þó skyldi ég sigla um eilífan aldur,
    ef öldurnar breyttust í vín :,:
    :,: Já, sjómennskan, já, sjómennskan,
    já, sjómennskan er ekkert grín" :,:

Og þannig leið ævin hans Þórðar
við þrældóm og vosbúð og sukk.
Svo kvaddi hann lífið eitt kvöldið.
Þeir kenndu það of miklum drukk.
Og enn þegar sjóhetjur setjast
að sumbli og liðkast um mál
þá tæma þeir ölkollu honum til heiðurs
og hrópa í fögnuði: Skál!

Kristján frá Djúpalæk