Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Það blanda allir landa

Það blanda allir landa upp til stranda
og vanda sig svo við að brugga bjór.
Síðan drekkur fólkið þennan fjanda
og viðskiptahópurinn er stór.

Þeir selja hver öðrum slíkan varning
og úrvalið af tegundum er gott.
þó þeir stundi líka ýmsan barning,
þá lifa þeir víst ótrúlega flott.

Já, það blanda allir landa upp til stranda
og standa í þessu nótt sem nýtan dag.
En unglingarnir valda mörgum vanda
þeir kunna ekki forledranna fag.

Í turnunum súrhey börnin reykja
og steikja sér svo smáfugla á tein.
Og næstu því í hlöðunum þeir kveikja
svo gamla fólki rekur bara´upp vein.

Já, það blanda allir landa upp til stranda
og standa í þessu nótt sem nýtan dag.
En unglingarnir valda mörgum vanda
þeir kunna ekki forledranna fag.
En unglingarnir valda mörgum vanda
þeir kunna ekki foreldranna fag.

Erl. lag / Þorsteinn Eggertsson