Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Tætum og tryllum

Tætum og tryllum og tækið nú þenjum
í botni eitthvað lengst upp í sveit,
tröllum og tjúttum og tökum svo lagið
í lundi hvar enginn veit.

Allir eru í fínu formi,
enginn nennir neinu dormi
því nóttin er löng þó að lífið sé stutt og
allir fara í sveitarferð...

Allt er í fína og enginn vill sýn´ af sér
sút eða sorg í kvöld,
Konráð og Ræna, hani og hæna,
fatt’ að hér er gleðin við völd.

Allir eru í fínu formi,
enginn nennir neinu dormi
því nóttin er löng þó að lífið sé stutt og
allir fara í sveitarferð.

Jakob F. Magnússon