Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Spáðu í mig

kvöldin eru kaldlynd útá Nesi
kafaldsbylur hylur hæð & lægð
kalinn & með koffortið á bakinu
kem ég til þín segjandi með hægð:

spáðu í mig
þá mun ég spá í þig
spáðu í mig
þá mun ég spá í þig.

nóttin hefur augu eins og flugan
& eflaust sér hún mig þar sem ég fer
heimulega á þinn fund að fela
flöskuna og mig í hendi þér

spáðu í mig ...

finnst þér ekki esjan vera sjúkleg
& akrafjallið geðbilað að sjá
ef ég bið þig um að flýja með mér
til omdúrman þá máttu ekki hvá

spáðu í mig ...

& kvöldin eru kaldlynd út á Nesi
kafaldsbylur hylur hæð & lægð
kalinn & með koffortið á bakinu
kem ég til þín segjandi með hægð

spáðu í mig ...

Megas