Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Sönn ást

Þó margt ég hafi séð,
og furðu mikið skeð
fyrir okkar fyrstu kynni,
tel ég ekki með
tíkalls virði af litlum ævintýrum hér og þar.
Freistingarnar biðu okkar
svo til allstaðar.

Hjartað segir til
og ástin kemst í spil.
Hvað skeði á milli okkar enn í dag ég ekki skil.
Eldur fór um æðar mér, og langar leiðir sást,
að ég hafði fundið
þessa einu sönnu ást.

Hugsar hver um sig, þú sagðir bless við mig.
Jafnvel sjálfur fjandinn hefði ekki stöðvað þig.
Eftir að þú fórst, þá hef ég reynt hvað er að þjást.
Var hún máske ímyndun þessi eina sanna ást.

Björgvin Halldórsson