Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Ship-o-hoj

Sjómannslíf, sjómannslíf,
draumur hins djarfa manns,
blikandi bárufans,
býður í trylltan dans.

Sjómannslíf, sjómannslíf,
ástir og ævintýr
fögnuð í faðmi býr
brimhljóð og veðragnýr.

Ship-o-hoj, ship-o-hoj
ferðbúið liggur fley.
Ship-o-hoj, ship-o-hoj
boðanna bíð ég ei.

Við stelpurnar segi ég
ástarljúf orð
einn, tveir, þrír kossar
svo stekk ég um borð.

Ship-o-hoj, ship-o-hoj
mig seiðir hin svala dröfn.
Ship-o-hoj, ship-o-hoj
og svo nýja í næstu höfn.

Oddgeir Kristjánsson / Loftur Guðmundsson