Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Prumpufólkið

Í Vesturbænum býr skrítinn karl
og jafnvel furðulegri er konan hans.

Hann er með rosalega bumbu
úti á götu þau tvö stíga trylltan dans.
Þau skreyttu jólatré í júní
og karlinn sagðist vera kind.
Þau stóðu á höndum út á túni
og fóru bæði að leysa vind.

Og karlinn prumpar svona ...
Og konan prumpar svona ...
og krakkarnir prumpa með ...
la la la la la la la la la la la la la.

En fullorðna fólkið það varð brjálað
og skammaði börnin sín:
Það er dónaskapur að prumpa
já, það er sko alls ekkert grín!
Og lögga kom á hjóli
og spurði: Hvað þykist þið geta?
Ég heiti Siggi stóri
og ég kann sko að freta!

Og löggan prumpar svona ...
Og karlinn prumpar svona ... (o.s.frv.)
Og nú kemur fólk frá útlöndum
frá Hong Kong og París og Kúala Lúmp.
Það kemur alla leið til Íslands
til þessa að heyra alvöru prump.

Og karlinn prumpar svona ...
Og (konan, löggan, krakkarnir og túristarnir) prumpa svona ...
En fullorðna fólkið bara prumpar ekki neitt.
la la la la la la la la la la la la la.

Dr. Gunni