Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Ofboðslega frægur

Hann er einn af þessum stóru,
sem í menntaskólann fóru
og sneru þaðan valinkunnir andans menn.
Ég sá hann endur fyrir lögnu,
í miðri Keflavíkurgögnu,
hann þótti helst til róttækur og þykir enn.

    Viðlag:

    Já hann er, enginn venjulegur maður,
    og hann býr, í næsta nágrenni við mig,
    og hann er alveg ofboðslega frægur,
    hann tók í höndina á mér, heilsaði mér
    og sagði: KOMDU SÆLL OG BLESSAÐUR
    (ég fór gjörsamlega í kút)
    Hann sagði: KOMDU SÆLL OG BLESSAÐUR
    (ég hélt ég myndi fríka út)

Hann hefur samið fullt af ljóðum,
alveg ofboðslega góðum,
sem fjalla aðallega um sálar líf þíns
innri manns.
Þau er ekki af þessum heimi,
þar sem skáldið er á sveimi
miðja vegu milli malbiksins og regnbogans.

    Já hann er enginn venjulegur maður...

Við ræddum saman heima og geyma,
ég hélt mig hlyti að vera að dreyma
(en ég var örugglega vakandi).
Mér fannst hann vera anzi bráður,
hann spurði hvort ég væri fjáður
og hvort ég væri allsgáður og akandi.

    Já hann er enginn venjulegur maður...


Stuðmenn