Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Nú liggur vel á mér

Stína var lítil stúlka í sveit,
stækkaði óðum blómleg og heit,
Hún fór að vinna, var margt að gera,
lærði að spinna, látum það vera.
Svo var hún úti sumar og haust,
svona var lífið strit endalaust.
Samt gat hún Stína söngvana sína sungið
með hárri raust.

    Viðlag:

    Nú liggur vel á mér, nú liggur vel á mér,
    gott er að vera léttur í lund,
    lofa skal hverja ánægjustund.

Gaman fannst Stínu að glettast við pilt,
gaf hún þeim auga, var oftast stillt.
Svo sá hún Stjána, það vakti þrána,
hann kom á Grána út yfir ána.
Sæl var hún Stína saklaus og hraust,
svo fór hann burtu koldimmt um haust.
Samt gat hún Stína söngvana sína sungið
með hárri raust.

    Nú liggur vel á mér....

Nú er hún Stína gömul og grá,
getur þó skemmt sér dansleikjum á,
situr hún róleg horfir á hina
hreyfast í takt við dansmúsikina.
Alltaf er Stína ánægð og hraust,
aldrei finnst henni neitt tilgangslaust.
Enn getur Stína söngvana sína sungið
með hárri raust.

    Nú liggur vel á mér....


Óðinn G. Þórarinsson / Númi Þorbergsson