Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Ljósbrá

Ljósbrá,
þá var sífellt sumar,
og sól í hjarta;
þú komst til mín.

Ennþá
fyllist sál mín sælu
er sit ég þögull
og minnist þín.

Þinn ástarbikar þú barst mér fullan
í botn ég drakk hann
sem gullið vín.

Ljósbrá,
meðan blómin anga,
með bljúgu hjarta
ég minnist þín.

Eiríkur Bjarnason / Ágúst Böðvarsson