Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Lilla Jóns

Það segja margir að ég hafi verið
hafi verið heppinn að ná í Lillu Jóns.
Og satt er það að engin, engin
er líkt því eins kát og Lilla Jóns.
Ég veit aldrei hvert hún fer
eða hjá hverjum hún er mér til tjóns,
hún Lilla Jóns.

Því þó hún fengi hjá mér hring
er hún með hinum og þessum,
hinum og þessum hvert sinn.
Og ég veit aldrei hvort hún fermeð Óla eða Bjarna,
Óla eða Bjarna út eða inn.
En vanti hana aura
þá laumast hún í vasa minn.

Við munum gifta okkur seint í september
og sjá svo til hvernig þetta fer,
því ég skal halda henni hjá mér
hvernig sem hún svo – barmar sér.

Lilla Jóns, Lilla Jóns, seg mér, seg mér,
seg mér hvert þú ætlar nú.
Ég myndi gera hvað sem er ef aðeins
ef aðeins ef aðeins ef þú ert mér trú.
Því áður en langt um líður
mun þig langa að eiga börn og bú.

Ray Sharpe / Jón Sigurðsson