Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Leyndarmál

Viltu eignast leyndarmál
sem ég geymi’ í minni sál.
Leyndarmál sem varðar aðeins þig og mig.

Leyndarmál svo stórfenglegt,
furðulegt og yndislegt.
Viltu lofa að segja ekki frá.

Ég veit það nú, ég elska þig.
Og ég veit að ef þú elskar mig
eins mikið og ég dái þig
verður þú ávallt góð við mig.
Þá að lokum ég mun eignast þig.

Nú veist þú mitt leyndarmál
um mitt mikla ástarbál.
Leyndarmál um aðeins þig og mig
- þig og mig.

Þórir Baldursson / Þorsteinn Eggertsson