Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Húsið og ég

Húsið er að gráta alveg eins og ég.
Dar-ra-ra-ra-ra, o-ó.
Það eru tár á rúðunni
sem leka svo niður veggina.
Gæsin flýgur á rúðunni,
eða er hún að fljúga á auganu á mér?
Ætli húsið geti látið sig dreyma,
ætli það fái martraðir?

Hárið á mér er ljóst, þakið á húsinu grænt,
ég Íslendingur, það Grænlendingur.

Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó.
Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó.

Einu sinni fórum við í bað og ferðuðumst til Balí.
Við heyrðum í gæsunum og regninu.

Það var í öðru húsi, það var í öðru húsi,
það var í öðru húsi, það á að flytja húsið í vor.

Mér finnst rigningin góð ...

Grafík