Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Hún Gunna

Gunna var í sinni sveit
saklaus, prúð og undirleit,
hláturmild, en helst til feit.
En hvað er að fást um það?
En svo eitt haust kom mærin með
mjólkurbíl um leið og féð.
Henni var það hálft um geð.
Hvað er að fást um það?
Svo leigði hún sér kvistherbergi upp við Óðinstorg,
úti fyrir blasti við hin syndum spillta borg.
En engum bauð hún upp til sín.
Aldrei hafði hún bragðað vín.
Hún horfði bara á heimsins grín.
Hvað er að fást um það?

Upplýsingar um höfund vantar.