Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Hudson bay

ég byggði mér hús við hafið
og hafið sagði ó key
hér er ég og heiti
hudson bay

í kvöldsins hægláta húmi
heyrði ég bylgjunnar sog
þannig er þessi heimur
það er og

og hjarta mitt fylltist friði
og farmannsins dreymnu ró
ég hugsaði um allt sem ég unni
og þó

í nótt mun ég krókna úr kulda
í kofa við hudsons bay
þú mikli eilífi andi
ó key.

Steinn Steinarr