Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Híf-opp

Viðlag:
    Híf opp mælti karlinn
    inn með trollið inn,
    hann er að gera haugasjó
    inn með trollið inn.
    Og kalli þessu hásetarnir
    hlýddu eins og skot
    og út á dekkið ruddust þeir
    en fóru strax á flot. - Klárir!
    Siggi gamli bræðslumaður
    stóð og verk sín vann
    er hundrað lítra grútarkaggi
    hvolfdist yfir hann. - Klárir!

Í eldhúsinu ástandið
var ekki heldur gott
því kokkurinn á hausinn stakkst
í stóran grautarpott. - Klárir!

Þegar næsta alda reið
og yfir dallinn gekk
Flaug nálablókin eins og engill
upp á bátadekk. - Klárir !

Og gegnum brotnar rúðurnar
í brúnni aldan óð
svo kallinn alveg klofblautur
í köldum sjónum stóð. - Klárir!

Eftir mikil hróp og köll
stimabrak og bras,
Skall forhlerinn á borðstokkinn
og brotnaði þar í mask. - Klárir!

En veðurgnýrinn kæfði loksins
alveg öskur hans
Og trollið sjálft var löngu farið
allt til andskotans. - Klárir!

Jónas Árnason