Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Fram á nótt

Börn, og aðrir minna þroskaðir menn
fóru að gramsa í mínum einkamálum
þegar ég var óharðnaður enn
og átti erfitt með að miðla málum.

Þú varst að ganga rekin í kút
til þess að verða fyrir aðkasti mannana
þó að þú lítir alls ekki út
fyrir að lifa eftir lögum þess bannaða.

En hvernig kemst ég inn þegar allt er orðið hljótt
þá verða menn um sinn að djamma fram á nótt.
En hvernig kemst ég inn þegar allt er orðið hljótt
þá verða menn um sinn að djamma.

Mitt, vandamál er á andlega sviðinu
hugsanirnar heimskar sem gínur á húsþökum
þú ættir að sjá í andlitið á liðinu
er það sér úr þessu vandræði við bökum

Þú varst að ganga rekin í ...

(Ný dönsk)