Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Elsku vinurinn góði

Nú er úti norðanvindur
nú er hvítur Esjutindur
ef ég ætti úti kindur
myndi ég láta þær allar inn
elsku besti vinurinn.
    :,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:
Upp er runninn öskudagur
ákaflega skýr og fagur
einn með poka ekki ragur
úti vappar heims um ból
góðan daginn - gleðileg jól.
       :,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:
Elsku besti stálagrér
heyrirðu hvað ég segi þér -
þú hefur étið úldið smér
og dálítið af snæri
elsku vinurinn kæri.
    :,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:
Þarna sé ég fé á beit
ei er því að leyna
nú er ég kominn upp í sveit
á rútunni hans Steina
Skilurðu hvað ég meina?
    :,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:
Höfði stingur undir væng
hleypur nú á snærið.
Hún Gunna liggur undir sæng
öll nema annað lærið.
Nú er tækifærið.
    :,: Umbarassa, umbarassa, umbarassassa :,:


Ungverskt þjóðlag / Ólafur Kristjánsson o.fl.