Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Augun þín

Augun þín
fá dimmu í dagsljós breytt.
Augun þín
fá sorgarskýjum eytt.
Ljómi þau
er allt svo undur bjart
að ég því trúi vart,
að mér þau segi satt.
Þó eru augun þín
svo full af tærri tryggð
og tállaus yfirskyggð, af ást.
Augun þín,
þau birta eitt og allt,
segja þúsundfalt
að þú sért ástin mín.

Burt rekur þú
frá mér sérhverja sorg,
syng ég því glaðvær
um stræti og torg,
vegsama allt sem þau tjá,
og ég á
geymt í hjarta mínu.

Vladimir / Sigurður Helgi Guðmundsson