Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Ástardúettinn

Ég er dáinn úr ást þó hjartað dæli blóði.
Ég heyri engan mun á hávaða eða hljóði.
Ég er gagntekinn, altekinn, heltekinn,
tekinn í framan. UUUU framan.
Ég er andvana, máttvana, magnvana
þegar ég sé Hörpu Sjöfn Hermundardóttur
Hörpu Sjöfn Hermundardóttur
Hörpu Sjöfn, Harpa Sjöfn.

Stinnur og stór, stinnur eins og Sokki
sem Runki fór á ríðandi á brokki.
Ég finn fyrir skjálfta í hnjánum
fiðringi í tánum með honum. UUUU honum.
Ég er andvana, máttvana, magnvana þegar ég sé
Kristinn stuð Styrkársson Proppé
Kristinn stuð Styrkársson Proppé
Kristinn stuð, Stinni stuð.

Samband þeirra er frá öllum hliðum séð stórfínt
alveg til fyrirmyndar.
Samband þeirra er frá öllum hliðum séð stórfínt.

Hvar sem þú ert til sjávar eða sveita.
þú efalaust ert að ástinni að leita.
Hættu ekki, gefstu ekki upp þó á móti þér blási.
Við leituðm lengi uns fundum hvort annað.
Kristinn stuð Styrkársson Proppé,
Harpa Sjöfn Hermundardóttir.
Kristinn stuð, Harpa Sjöfn.

Samband þeirra er frá öllum hliðum séð stórfínt
alveg til fyrirmyndar.
Samband þeirra er frá öllum hliðum séð stórfínt
alveg til fyrirmyndar.

Stuðmenn