Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Ást við fyrstu sýn

Ég elska þig heitar en orð geta tjáð.
Tár mín svo frosin, orð mín svo tóm
þögul og brennandi heit er mín ást.
Ég man er ég leit fyrst í augu þín
vitandi allt.

Já ef steinar og jörð gætu talað, sagt frá
sporum í sandi frá liðinni öld,
kveðjum og heitum um eilífa tryggð.
Ég veit ég hef elskað þig áður
og elska þig enn

Það var ást við fyrstu sýn
það var ást við fystu sýn

Tíminn stóð í stað
og umhverfið hvarf
allt varð svo hljótt
veröld sem svaf - vaknaði
tindrandi björtum augum mig leit.

Við eigum svo undurvel saman við tvö,
skiljum hvort annað og heiminn svo vel
Sálir sem hittast og heilsast á ný
Ég veit ég hef elskað þig áður
og elska þig enn

Það var ást við fyrstu sýn
það var ást við fyrstu sýn

Tíminn stóð í stað...

Magnús Þór Sigmundsson