Fréttir
Tvær nýjar vefmyndavélar á Suðureyri
Snerpa hefur í samstarfi við Klofning tekið í gagnið tvær nýjar vefmyndavélar á Suðureyri.
Frítt niðurhal og símaþjónusta - Nýjar og breyttar þjónustuleiðir
Vegna nýrra samninga Snerpu um útlandasamband hefur verið ákveðið að bjóða áskrifarpakka á heimilistengingum Snerpu sem innifela frítt niðurhal, þ.e. ekki er gjaldfært eftir notuðu gagnamagni. Þá verður einnig í boði símaþjónusta bæði yfir Smartnetið og ljósleiðarann.
Aldrei fór ég suður opnar nýja vefsíðu
Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður opnaði í gær nýja og rokkaða vefsíðu á aldrei.is. Nýja vefsíðan er líkt og sú gamla hönnuð af Ágústi Atlasyni og keyrir að sjálfsögðu á vefumsjónarkerfinu Snerpill frá Snerpu.
BBC, Discovery og Eurosport í Vodafone Sjónvarpi
Vodafone hefur náð beinum samningum við sjónvarpsrisana BBC og Discovery um dreifingu á 11 vinsælum sjónvarpsstöðvum næstu árin, þremur úr smiðju BBC og átta frá Discovery, þar með talið Eurosport stöðvunum vinsælu.
Kaspersky fær hæstu einkun hjá AV-TEST
Kaspersky Small Office Security vörulínan fékk á dögunum hæstu einkun í úttekt hjá óháðu öryggisstofnuninni AV-TEST. Fékk hún 6 af 6 mögulegum í öllum þremur prófum stofnunarinnar og var valin vörn ársins 2015.