Hafðu samband: 520 4000 [email protected]
Björn Davíðsson Björn Davíðsson | 15. nóvember 2017

Ljósleiðaraþjónusta hafin í Dýrafirði og Önundarfirði

Frá framkvæmdum á Hvilftarströnd.
Frá framkvæmdum á Hvilftarströnd.

Snerpa opnaði formlega í dag ljósleiðaraþjónustu í Dýrafirði og Önundarfirði. Þjónustan nær einungis til fárra notenda til að byrja með en verður byggð frekar upp á næstu árum. Í fyrsta áfanga eru tengdir grunnskólinn og leikskólinn á Þingeyri auk samfélagsmiðstöðvarinnar Blábankans. Þá stendur þjónustan einnig til boða í dreifbýlinu innan við Þingeyri, í Hvammi og á Ketilseyri. Í Önundarfirði markast þjónustusvæðið frá Ytri Veðrará út á Kaldeyri að meðtöldum Breiðadal. Þar með gefst jafnframt kostur á tengingu fyrir tvær nýjar virkjanir sem er verið að byggja á svæðinu. Nettenging virkjananna er ein af forsendum þess að mæla og stjórna rafmagnsframleiðslu í þeim enda eru þær fjarstýrðar.

Samstarfsaðilar Snerpu í þessum verkefnum eru þrír. Ísafjarðarbær fjármagnaði hluta framkvæmdanna með styrkfé gegn eignarhlut í kerfinu og forsendum um frekari uppbyggingu á næstu árum. Einnig gerði Snerpa sérstakan samning við Öryggisfjarskipti ohf. sem rekur m.a. dreifikerfi fyrir Tetra fjarskiptakerfið. Samningurinn við Öryggisfjarskipti felur í sér gagnkvæma samnýtingu á strengjum í Dýrafirði sem gerir Snerpu kleift að bjóða aðgang á sveitabæjum þar á sama verði og er í þéttbýli sem er jafnframt ein af forsendum samstarfssamnings við Ísafjarðarbæ. Þá mun Snerpa geta boðið verktökum og eftirlitsaðilum með byggingu Dýrafjarðarganga tengingu Dýrafjarðarmegin í vor en Snerpa selur þessum aðilum nú þegar þjónustu sína Arnarfjarðarmegin. Síðast en ekki síst byggir Snerpa svo stóran hluta af sínum framkvæmdum á samstarfssamningi við Orkubú Vestfjarða en hann hefur orðið til þess að margar framkvæmdir sem annars hefði ekki orðið af hafa klárast fljótt og örugglega.


Til baka