Hafðu samband: 520 4000 [email protected]

Sjónvarp

Fjölbreytt sjónvarpsþjónusta er í boði í gegnum nettengingar hjá Snerpu. Margir nýta sér snjallsjónvörp eða sjónvarpsbox á borð við Apple TV og Google Chromecast en einnig er hægt að notast við myndlykla frá Vodafone og Símanum.


Á ljósleiðara er hægt að vera með allt að 7 myndlykla en á símalínu (ADSL/VDSL) er mest hægt að vera með fimm myndlykla en það fer allt eftir línulengd og gæði tengingar.

Fjölbreytt sjónvarpsþjónusta er í boði í gegnum Smartnet og Ljósleiðara Snerpu.

  • Vodafone Sjónvarp býður upp á Stöð 2, Stöð 2 Maraþon Now og annað fjölbreytt efni.
  • Sjónvarp Símans óháð neti inniheldur Sjónvarp Símans Premium sem býður upp á 48 tíma af tímaflakki, ólínulega dagskrá Sjónvarp Símans rásarinnar, yfir 7.500 klukkustundir sjónvarpsefni og aðgang að myndbandsleigu Símans.
  • NovaTV appið á AppleTV er með allar íslenskar rásir opnar.
  • RÚV er með allt sitt efni á Sarpinum á iOS og Android.
  • Svo má ekki gleyma streymisveitum á borð við Netflix, Disney+ og Amazon Prime Video.