Hafðu samband: 520 4000 [email protected]
Sturla Stígsson Sturla Stígsson | 27. október 2023

Snerpa er Framúrskarandi fyrirtæki 2023

Þriðja árið í röð hefur Snerpa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki og er eitt 16 fyrirtækja á Vestfjörðum og í hópi um 2% íslenskra fyrirtækja sem hlýtur hana í ár.

Ár hvert vinnur Creditinfo ítarlega greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og eru meginmarkmið greiningarinnar að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. 

Til að teljast til Framúrskarandi fyrirtækja þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði um stöðugan rekstur þrjú ár aftur í tímann.

Fyrirtæki telst Framúrskarandi fyrirtæki 2023 ef það uppfyllir eftirfarandi skilyrði:

  • Hefur skilað ársreikningi til RSK fyrir rekstrarárin 2020–2022
  • Hefur skilað nýjasta ársreikningi á réttum tíma
  • Er í lánshæfisflokki 1-3
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) var jákvæður rekstrarárin 2020–2022
  • Ársniðurstaða var jákvæð rekstrarárin 2020–20221
  • Eiginfjárhlutfall var a.m.k. 20% rekstrarárin 2020–2022
  • Framkvæmdastjóri er skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Ársniðurstaða jákvæð síðustu þrjú ár
  • Rekstrartekjur að lágmarki 55 milljónir króna 2022 og a.m.k. 50 milljónir króna 2021 og 2020.
  • Eignir a.m.k. 110 milljónir króna 2022 og a.m.k.100 milljónir króna 2021 og 2022

Snerpa er afar stolt af þessum árangri og skiptir sterk liðsheild starfsmanna og traustir viðskiptavinir þar lykilhlutverki.


Til baka