Notendur á búnaði Snerpu á Súðavík geta orðið fyrir truflunum aðfaranótt fimmtudags 12. september vegna viðhaldsvinnu, jafnframt sömu nótt verða gerðar prófanir á varaafli í Bolungarvík.
Upphafstími framkvæmda fyrir Súðavík er 01:00 og stendur til 02:00 áætlaður roftími er um 15 mín.
Ráðgert er að prófanir á varaafli í Bolungarvík verði gerðar á tímabilinu 02:00 og 04:00, ef truflanir verða á tengingum er gert ráð fyrir roftíma um 5 mín.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu kunna að stafa.