Snerpa.is - Fréttir
Um helgina hafa verið að ganga svikapóstar til meðal annars notenda Snerpu. Fólk er hvatt til að hunsa þessa pósta.
Ef formið sem vísað er á hefur verið fyllt út þá er um að gera að skipta sem fyrst um lykilorð að netfanginu sem notað var. Hægt að fá aðstoð í síma 5204021 fyrir þá sem treysta sér ekki til þess sjálfir en einnig er hægt að skipta um lykilorð í vefpóstinum hjá okkur á https://vefpostur.snerpa.is.
Vissir þú að þú getur sparað umtalsvert í net- og símakostnaði með því að versla í heimabyggð?
Hjá Snerpu getur þú fengið heimanet og farsíma á einungis 12.980 kr!
Gerðu samanburð á helstu áskriftarleiðum hjá Snerpu, Símanum og Sýn og sjáðu hvort þú getir ekki sparað með því að skipta til Snerpu.
Opnunartími verslunar Snerpu yfir hátíðirnar er sem hér segir.
Þriðjudagur 23. des - Opið 8:30-16:30
Miðvikudagur 24. des - Lokað
Fimmtudagur 25. des - Lokað
Föstudagur 26. des - Lokað
Laugardagur 27. des - Lokað
Sunnudagur 28. des - Lokað
Mánudagur 29. des - Opið 8:30-16:30
Þriðjudagur 30. des - Opið 8:30-16:30
Miðvikudagur 31. des - Lokað
Fimmtudagur 1. jan - Lokað
Föstudagur 2. jan - Verslun lokuð vegna vörutalningar
Hægt er að ná í bakvakt vegna bilana yfir allar hátíðirnar.
Nú styttist óðum í að 2G og 3G kerfunum verði lokað um land allt sem þýðir að búnaður sem styður aðeins 2G eða 3G mun hætta að virka. Því er mikilvægt að þú skiptir þeim tækjum út, því annars átt þú á hættu að missa farsímasamband.
Lokun 2G á Vestfjörðum verður 8. desember næstkomandi en lokun 3G kerfa hefst í byrjun árs 2026.
Ef þú átt eldri síma, öryggismyndavélar eða önnur tæki sem tengjast við farsímakerfið þá skaltu athuga hvort þau styðji VoLTE eða 4G og skipta þeim út ef svo er ekki.
Fimmta árið í röð hefur Snerpa hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki og er eitt 10 fyrirtækja á Vestfjörðum sem stóðust ströng skilyrði Creditinfo til ná þessum áfanga.
Ár hvert vinnur Creditinfo ítarlega greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og eru meginmarkmið greiningarinnar að verðlauna þau fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi.
Til að teljast til Framúrskarandi fyrirtækja þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði um stöðugan rekstur þrjú ár aftur í tímann.
Fyrirtæki telst Framúrskarandi fyrirtæki 2025 ef það uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
Ársreikningi skal skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag. Tekið verður tillit til allra opinberra framlenginga RSK á skilafresti
Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárin 2023-2024 og að lágmarki 55 milljónir króna reikningsárið 2022
Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 2 milljarða króna þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2022-2024
Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2022-2024
Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2022-2024
Eignir að minnsta kosti 120 milljónir króna reikningsárin 2023-24 og að lágmarki 110 milljónir króna reikningsárið 2022
CERT-IS varar við vefveiðaherferð þar sem yfirteknir aðgangar eru misnotaðir til að senda út vefveiðapósta sem innihalda excel skjal í viðhengi.
Skjalið leiðir inn á svika innskráningarsíðu í nafni Microsoft og reynt er að stela aðgangsupplýsingum. Póstarnir eru trúverðugir þar sem þeir koma frá traustum sendanda.
Ef þú hefur fengið slíkan tölvupóst og skráð þig inn, láttu okkur vita strax með því að senda tölvupóst á firma@snerpa.is eða hringja í 520 4015.
Nánar má lesa um herferðina ásamt ráðleggingum varðandi hana á vef CERT-IS.
Ný vefmyndavél hefur verið sett upp við smábátahöfnina á Þingeyri og kemur hún í stað eldri vélar sem bilaði fyrir nokkrum misserum.
Sjá má frá myndavélinni hér.
Nú eru fimmtán virkar vefmyndavélar á Vestfjörðum sem Snerpa sendir frá í samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu.
Snerpa hefur í sumar unnið að ljósleiðaravæðingu á Bíldudal í samstarfi við Vesturbyggð og eru þær tengingar sem verða í ár á lokametrunum. Vegna tafa á gerð snjóflóðavarnargarðs verður ekki mögulegt að tengja hús innan við Dalbraut 20 fyrr en á næsta ári.
Við reiknum með að hægt verði að hefja tengingar í lok næstu viku en til að flýta fyrir hefur verið ákveðið að byrja að safna saman pöntunum frá og með þessarri viku. Snerpa býður notendum á Bíldudal sérstakt opnunartilboð sem mun gilda á meðan enn er fært yfir Trostansfjarðarheiði. Tilboðið felur í sér að tengimánuður og næsti mánuður þar á eftir verða fríir, bæði hvað varðar nettengingar og farsímaáskriftir.
Snerpa hefur boðið heimilispakkann á ljósleiðaraneti Snerpu frá haustinu 2015 og það á óbreyttu verði öll tíu árin!
Ótakmarkaða nettengingin okkar, Bara net kostar 8.900 kr. á mánuði. Fyrir 9.990 kr. mánaðargjald fæst 200 GB netttenging með netbeini (router) og heimilissími. Einnig er hægt að fá ótakmarkaða farsíma að auki á 2.990 kr. mánaðargjald pr. númer. Nánar um þessa kosti og meira úrval á pöntunarsíðum Snerpu sem er hér fyrir nettengingar og hér fyrir farsíma.
Sett hefur verið upp ný vefmyndavél á Hrafnseyri í Arnarfirði í stað eldri vélar og hafa því myndgæðin frá staðnum aukist umtalsvert. Sjá má frá nýju vélinni hér.
Snerpa sýnir frá fimmtán vefmyndavélum á Vestfjörðum í samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga á svæðinu sem leggja ómælda vinnu ásamt myndavélum í verkefnið.
Lokun á 2G og 3G farsímaþjónustu hér á landi fer nú fram í áföngum og verður lokið hjá öllum fjarskiptafyrirtækjum í síðasta lagi í árslok 2025.
Þá bendir Fjarskiptastofa á að sumir farsímar geta líka hætt að virka þrátt fyrir að þeir hafi verið markaðssettir og seldir sem 4G-samhæfðir. Ástæðan er sú framleiðendur farsíma þurfa að virkja VoLTE tæknina sérstaklega fyrir Ísland og fyrir hverja tegund farsíma og ekki er öruggt að það hafi alltaf verið gert.
Hvað breytist hjá notendum?
Símtæki og tæki sem aðeins styðja 2G/3G hætta að virka.
Símtæki sem ekki styðja VoLTE (Voice over LTE) eða hafa ekki virkjað þá stillingu hætta að virka.
Ýmis tæki til vöktunar, mælinga og stýringa, sem aðeins styðja 2G/3G, hætta að virka.
Lesa má nánar um málið á hjá Fjarskiptastofu.